29.3.2007 | 16:45
Krónikan seld...
Í dag gekk DV frá kaupum á fréttaskýringaritinu Krónikunni. Krónikan, sem aðeins hefur gefið út 7.tbl, mun ekki koma aftur út. DV hefur þó boðið öllum starfsmönnum Krónikunnar starf hjá DV en heimildir herma að fæstir ætli að taka því tilboði.
Já, svona er þetta. Fyrir þá sem ekki vita það þá er ég starfsmaður Krónikunnar en ég veit ekkert hvort að DV ætli að bjóða mér vinnu hjá sér þar sem ég er einungis sölumaður. En þetta kemur allt í ljós í fyrramálið því að ég á að mæta á Hverfisgötuna á venjulegum tíma, eða klukkan 9:00.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2007 | 14:53
Knútur orðinn morðingi
Litli ísbjarnarhúnninn Knútur kann aldeilis að koma sér í fréttirnar. Eftir að móðir hans hafnaði honum við fæðingu var honum komið fyrir í dýragarði í Berlín. Þar vakti hann hann strax mikla athygli og varð mjög vinsæll um allan heim.
Þá komu einhverjir NÁTTÚRUVERNDARSINNAR og vildu að hann yrði látinn deyja. Þetta vakti mikla athygli en á endanum var sú ákvörðun tekin að þyrma lífi hans.
Lítið hefur farið fyrir Knút síðan þar til í dag, en nú voru að berast fréttir um að hann hafi myrt pönduna Yan-Yan. Þetta er alveg brandari í hæstu gæðum. Samt kannski ekkert svo fyndinn því að pöndur eru nú í mikilli útrýmingarhættu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2007 | 23:55
Ég vil ekki vera útundan
Svona er tilfinningin að eignast nýtt barn. Ég er búinn að eiga eitt barn sem ég skýrði www.blog.central.is/aron84 í u.þ.b. 2 ár og ég er eiginlega orðinn hundleiður á því og hyggst vanrækja það um tíma.
Ég er þó hræddur við að hrapa í popularity við að byrja með þessa síðu en mér er alveg sama, ég eignast bara nýja vini eins og t.d. Sigmar frænda í Kastljósinu, Helga Seljan og Önnu Kristjáns. Ekki slæm blanda þar á ferð.
En svona að öllu gríni slepptu þá ætla ég að reyna að vera málefnalegri á þessari síðu en aðdáendur mínir þurfa ekki að örvænta, ég held áfram að kasta inn einhverju bulli á hina síðuna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2007 | 13:21
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
